Umsagnir um skólamat Outcome
Árbæjarskóli
Outcome spurningakerfið gerir okkur kleift að kanna ýmsa þætti í skólastarfinu á fljótvirkan og þægilegan hátt. Öll vinnsla í kerfinu er mjög einföld og tímasparandi sem er mikill kostur fyrir stóra stofnun eins og Árbæjarskóla.
Reynsla okkar af þjónustu við starfsfólk Outcome er til fyrirmyndar og þar á bæ er alltaf starfsmaður til staðar til að veita ráðgjöf.
Bestu kveðjur úr Árbæjarskóla.
Una Björg Bjarnadóttir
Aðstoðarskólastjóri
Árbæjarskóla
Rofabær 34
110 Reykjavík
Varmárskóli
Varmárskóli notaði Outcome skólamatið sl. skólaár. Það hefur til að bera mikinn sveigjanleika þar sem unnt er að breyta spurningum og aðlaga þær því viðfangsefni sem við erum að fást við hverju sinni.
Úrvinnslan er þægileg og fljótleg. Þá er spurningapakkinn sem við keyptum með forritinu fjölbreyttur og faglega unninn. Það að
Við munum nota þetta kerfi áfram á komandi skólaári.
Viktor A. Guðlaugsson skólastjóri Varmárskóla
viktorag@ismennt.is
Seltjarnarnes
Starfsmenn Skólaskrifstofu Seltjarnarness og Grunnskóla Seltjarnarness kynntu sér matstækið Skólamat og báru það saman við önnur matstæki í tengslum við gagngera endurskoðun á sjálfsmati skólans.
Skólamat uppfyllti best þau viðmið sem við settum okkur og vegur þar hvað þyngst hversu vel afmarkað matstækið er og auðvelt er að nota það hvort heldur sem er óbreytt en ekki síður hversu auðvelt er að klæðskerasauma það að þörfum hvers skóla. Í Skólamati er ennfremur gert ráð fyrir að nýta kerfisbundið ýmsar aðrar upplýsingar sem safnað er í reglulegu skólastarfi, s.s. úr starfsmannaviðtölum. Einnig er möguleiki á að nota það í leikskóla og tónlistarskóla. Skólamatið, eins og önnur góð matstæki, byggir á hringferli eða spíral sem gerir það að verkum að í lok hvers þriggja ára tímabils er hægt að fara gaumgæfilega yfir þau markmið sem sett voru, sterkar og veikar hliðar sem fram komu svo og viðmið í þeim tilgangi að skoða hvort tilteknar umbætur hafi náð fram að ganga.
Seltjarnarnesbær hefur mjög jákvæða reynslu af að vinna með Outcome vefkannanakerfið og því lá beint við að athuga hvort hægt væri að nota þessi tæki saman, þar sem Skólamat gerir ráð fyrir reglubundnum könnunum sem lagðar eru fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk. Niðurstaðan var heildstætt verkfæri og höfum við miklar væntingar um að þessi samvinna auðveldi matshópnum að vinna matið, skila skýrslum og setja fram viðmið um árangur. Að okkar mati skiptir einnig miklu máli að mjög auðvelt er að nota Outcome og að niðurstöður úr könnunum birtast á myndrænu formi jafnskjótt og þær berast.
Margrét Harðardóttir
Grunnskólafulltrúi
Skólaskrifstofa Seltjarnarness
s: 5959-108
Foldaskóli
Outcome kannanakerfið er frábært kerfi!
Dæmi: http://foldaskoli.is/mat/foreldravidtol_feb_2007.pdf
Grunnskólinn í Stykkishólmi
„Við höfum tekið í notkun rafræna spurningalista sem við höfum lagað að okkar umhverfi hér. Hugmynda- og aðferðafræðin sem við vinnum eftir heitir Skólamat og er eftir Valdimar Helgason og Sif Vígþórsdóttur. Það er sérsniðið fyrir íslenska skóla og hefur verið útfært á rafrænan hátt. Kerfið hefur fengið þá umsögn að það væri það besta sem í boði væri til að ná yfir alla þá þætti sem rannsóknir hafa sýnt að séu mikilvæg atriði varðandi hvað einkennir góða skóla. Við erum afskaplega ánægð með þetta kerfi...“
Texti tekinn úr grein í Stykkishólmspóstinum 16. apríl 2009
Sjá hér.
Meðal notenda
Umsagnir notenda
„Úrvinnslan er þægileg og fljótleg. Þá er spurningapakkinn sem við keyptum með forritinu fjölbreyttur og faglega unninn.“
Varmárskóli






