Beint á leiðarkerfi vefsins

Af hverju Skólamat Outcome?

 

Notendavænt kerfi á hagstæðu verði og hægt er að byrja strax

  • Eina sem þarf er nettenging í skólann
  • Engin sértæk tölvuþekking nauðsynleg
  • Matsáætlun fylgir með en hún gefur hugmynd um framkvæmd
  • Hugmynd að skólaþróun fylgir til þess að vinna með niðurstöðurnar

 

Sérsniðin lausn að íslensku skólastarfi

Skólamat Outcome er sérsniðin lausn fyrir grunnskóla við gerð skólamats en á síðustu árum hafa kröfur um kerfisbundið mat á skólastarfi aukist og unnið hefur verið að þróun og framsetningu aðferða sem henta til heilstæðra mælinga á viðhorfum og stöðu mála sem snúa að nemendum, starfsfólki og foreldrum. Þetta kemur skýrt fram í lögum grunnskóla 66/1995 í grein 31, 49 og sérstaklega 51.

Með samvinnu við Sif Vígþórsdóttur skólastjóra í Norðlingaskóla og Valdimars Helgasonar kennara í Réttarholtsskóla, hefur Outcome sett upp sérstaka lausn fyrir grunnskóla inn í kannanakerfið. Þau Sif og Valdimar hafa um nokkurt skeið unnið að þróun heilstæðs matskerfis sem fellur að íslensku skólakerfi. Í því sambandi hafa þau kynnt sér fjöldann allan af matskerfum í fjölmörgum löndum til hliðsjónar.

Markmiðið er auðvitað að fá raunmynd af stöðu þeirra þátta sem skólastarfið og umgjörð þess snýst um sem er þá grunnur að því að gera gott starf betra.  Skólamat Outcome er íslenskt kerfi sem uppfyllir kröfur og væntingar menntamálaráðuneytisins & skóla til skólamats.

Einfalt og þægilegt í framkvæmd

Með Outcome SKÓLAMATI er einfalt og þægilegt að framkvæma kannanir, greina niðurstöður og búa til skýrslur. Outcome SKÓLAMATIÐ samanstendur af þrjátíu og einni staðlaðri vefkönnun fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans sem hver um sig inniheldur tíu spurningar.

  • Auðvelt er að aðlaga kannanir að þínum sérþörfum, s.s. spurningar og útlit kannana.
  • Allar kannanir hjá Outcome eru órekjanlegar og fyllsta öryggis er gætt við öflun upplýsinga, þar sem að öllu leiti er farið eftir tilmælum persónuverndar.
  • Mikill sveigjanleiki er í kerfinu, þar sem hægt er að gera tölvupóstkönnun, könnun á tölvum í kennslustofum eða í foreldraviðtölum svo eitthvað sé nefnt.
  • Niðurstöður kannana liggja fyrir í rauntíma og er sveigjanleiki innbyggður í kerfið við framsetningu gagna, t.d. útlit grafa.
  • Vinna með skýrslur er auðveld þar sem hægt er að fá meðaltöl spurninga og staðalfrávík ásamt því að hægt er að sía og krosskeyra svör eftir öðrum svörum s.s. bakgrunnsbreytum.
  • Einfalt er að flytja gögn úr kerfinu til frekari úrvinnslu í öðrum tölfræðiforritum eins og SPSS.

Innbyggð hjálp er í kerfinu en starfsmenn Outcome veita einnig leiðbeiningar um það hvernig best er vinna með kerfið.

Hér er hægt að lesa nokkrar umsagnir notenda Skólamats Outcome.


Meðal notenda

Umsagnir notenda

„Úrvinnslan er þægileg og fljótleg. Þá er spurningapakkinn sem við keyptum með forritinu fjölbreyttur og faglega unninn.“

Varmárskóli

Sjá nánar

Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréHamur fyrir sjónskerta