Kannanakerfi fyrir skóla
Outcome kannanakerfið er fullkomnasta og vinsælasta íslenska kannanakerfið sem völ er á. Síðastliðin 10 ár hefur kerfinu verið viðhaldið og þróað sérstaklega með þarfir íslenskra notenda í huga. Í gegnum árin hafa notendur kerfisins skipt hundruðum hjá fyrirtækjum, skólum, félögum og stofnunum, bæði hér heima og erlendis.
Sjálfsmat skóla
Outcome kannanakerfið er notað af tugum grunnskóla á landinu öllu allt árið um kring. Skólarnir hafa nýtt kerfið við mat á starfi skólanna hjá nemendum, foreldrum ásamt könnunum á starfsumhverfi og líðan starfsmanna.
Stór hluti grunnskólanna nýta sér einnig sérstakt Skólamatskerfi Outcome þar sem 31 spurningalisti er settur upp í kerfið til að auðvelda vinnu til muna.
Menntasvið Reykjavíkurborgar nýtir Outcome kannanakerfið fyrir ytra mat skóla í Reykjavík og síðustu ár hefur Outcome séð um ytra mat fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga, nú síðast í samtals 26 skólum.
“Outcome spurningakerfið gerir okkur kleift að kanna ýmsa þætti í skólastarfinu á fljótvirkan og þægilegan hátt. Öll vinnsla í kerfinu er mjög einföld og tímasparandi, sem er mikill kostur fyrir stóra stofnun eins og Árbæjarskóla. Reynsla okkar af þjónustu við starfsfólk Outcome er til fyrirmyndar og þar á bæ er alltaf starfsmaður til staðar til að veita ráðgjöf.„
Una Björg Bjarnadóttir
Aðstoðarskólastjóri Árbæjarskóla
Outcome kannanakerfið hefur verið vinsælasta íslenska kannanakerfið um árabil og er notað af tugum aðila stórum sem smáum.
Meðal þeirra sem nota kerfið eru Háskólinn í Reykjavík, Reykjavíkurborg, Actavis, Samtök Atvinnulífsins og Orkuveita Reykjavíkur svo eitthvað sé nefnt.






